Fotbolti.net
28.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Brighton að landa kólumbísku ungstirni - Fer svipaða leið og Caicedo

Fabian Hürzeler og félagar eru að fá kólumbískan miðjumann

Fabian Hürzeler og félagar eru að fá kólumbískan miðjumann

Canon

Mynd: EPA

Brighton er að ganga frá kaupum á kólumbíska ungstirninu Matias Orozco en þetta herma heimildir Athletic.
Brighton hefur náð samkomulagi við kólumbíska félagið Deportivo Cali um kaup á hinum átján ára gamla Orozco sem er þegar kominn til Englands til að ganga frá félagaskiptunum.

Orozco er miðjumaður sem vill helst liggja aftarlega á vellinum og stjórna spilinu þaðan. Hann vann sér sæti í aðalliði Deportivo Cali á síðustu leiktíð og hefur alls leikið 24 leiki í kólumbísku deildinni.

Brighton ætlar að lána hann til annars evrópsks félags þar sem hann fær tækifæri til að aðlagast evrópskum fótbolta og öðlast meiri reynslu.

Orozco mun því fara svipaða leið og Moises Caicedo en Brighton keypti hann frá Independiente del Valle fyrir fjórar milljónir punda árið 2021.

Caicedo var fyrst lánaður til Beerschot í Belgíu áður en hann braut sér leið inn í lið Brighton. Hann var síðan seldur til Chelsea fyrir 115 milljónir punda árið 2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.