Fotbolti.net
28.08.26 - 22:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Birmingham hafði betur í Hollywood-slagnum

Championship: Birmingham hafði betur í Hollywood-slagnum
Canon

Mynd: Birmingham City

Wrexham 1 - 2 Birmingham
0-1 Phil Neumann ('13 )
1-1 Callum Doyle ('54 )
1-2 Phil Neumann ('63 )
Wrexham fékk Birmingham í heimsókn í Championship deildinni í kvöld. Viðureignin hefur fengið viðurnefnið Hollywood-slagurinn en Hollywood leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru eigendur Wrexham og fyrrum NFL stjarnan Tom Brady er eigandi Birmingham.

Miðvörðurinn Phil Neumann var hetja Birmingham en hann skoraði bæði mörk liðsins. Callum Doyle jafnaði metin í seinni hálfleik eftir að Neumann hafði komið Birmingham yfir í fyrri hálfleik.

Níu mínútum eftir jöfnunarmarkið tók August Priske langt innkast en Wrexham náði að koma boltanum frá. Priske fékk boltann aftur og sendi fyrir og Neumann skallaði boltann í netið og tryggði Birmingham stigin þrjú.

Birmingham svarað vel eftir 6-1 skell gegn Brentford í deildabikarnum í vikunni. Liðið er með fimm stig eftir þrjár umferðir en Wrexham er með tvö stig.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.