28.08.26 - 20:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Cherki og Haaland sáu um Crystal Palace

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Crystal Palace 1 - 4 Manchester City
0-1 Erling Haaland ('17 )
0-2 Rayan Cherki ('54 )
1-2 Gianluigi Donnarumma ('56 , sjálfsmark)
1-3 Rayan Cherki ('59 )
1-4 Erling Haaland ('84 )

Man City lagði Crystal Palace af velli á Selhurst Park, heimavelli Palace, í kvöld.
Crystal Palace byrjaði leikinn sterkt en Man City náði forystunni eftir rúmlega stundafjórðung. Erling Haaland skoraði sitt fyrsta mark á tímablinu þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Antoine Semenyo.
Phil Foden hefði átt að bæta öðru markinu við stuttu síðar en hann setti boltann yfir úr dauðafæri.
Tyrick Mitchell var nálægt því að jafna metin eftir rúmlega hálftíma leik en skallaði boltann framhjá.
Rayan Cherki byrjaði á bekknum gegn Bournemouth í síðustu umferð en eftir að hafa lagt upp tvö mörk í endurkomusigri fékk hann tækifærið í byrjunarliðinu í kvöld.
Hann tvöfaldaði forystu Man City snemma í seinni hálfleik þegar hann laumaði boltanum snyrtilega framhjá Dean Henderson í marki Crystal Palace.
Crystal Palace náði að minnka muninn strax í kjölfarið. Yeremy Pino tók aukaspyrnu og skaut í slána. Boltinn fór þaðan í bakið á Gianluigi Donnarumma og í stöngina og inn.
Cherki bætti síðan þriðja marki Man City þegar hann átti skot sem fór af Chris Richards og í netið. Erling Haaland innsiglaði síðan sigur City eftir góðan undirbúning Phil Foden.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 2 | +2 | 6 |
| 2 | Brighton | 1 | +4 | 3 |
| 3 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 4 | Brentford | 1 | +3 | 3 |
| 5 | Everton | 1 | +2 | 3 |
| 6 | Hull City | 1 | +2 | 3 |
| 7 | Chelsea | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Ipswich Town | 1 | +1 | 3 |
| 9 | Leeds | 1 | +1 | 3 |
| 10 | Liverpool | 1 | 0 | 1 |
| 11 | Newcastle | 1 | 0 | 1 |
| 12 | Fulham | 1 | -1 | 0 |
| 13 | Sunderland | 1 | -1 | 0 |
| 14 | Bournemouth | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Nott. Forest | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Man Utd | 1 | -2 | 0 |
| 17 | Crystal Palace | 2 | -3 | 0 |
| 18 | Tottenham | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Coventry | 1 | -3 | 0 |
| 20 | Aston Villa | 1 | -4 | 0 |