Fotbolti.net
28.08.26 - 10:15
Fótbolti.net

Fjölskylduhátíð á Nesinu þegar Grótta getur komist upp

Safnað verður fyrir Ljónshjarta

Kvennalið Gróttu fagnar.

Kvennalið Gróttu fagnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
Grótta tekur á móti Selfossi í Lengjudeild kvenna á morgun laugardag en með sigri tryggir Grótta sér sæti í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Ákveðið hefur verið að blása til fjölskylduhátíðar á Seltjarnarnesi í tilefni leiksins. Hátíðin fer í gang 12:30 en leikurinn sjálfur verður flautaður á klukkan 14.

Leikurinn verður jafnframt góðgerðarleikur þar sem safnað verður fyrir Ljónshjarta.
Úr tilkynningu Gróttu
Það verður nóg um að vera áður en flautað verður til leiks. Hoppukastalar verða á svæðinu, myndaveggur og þrautir ásamt því að boðið verður upp á andlitsmálningu og DJ Anna Markar heldur uppi stemningunni.

Gróttuborgarar verða á grillinu, pizzur frá 107 og pylsur frá SS. Í eftirrétt verður nammi, kandíflos og popp á boðstólum. Sérstakt fullorðinstjald verður einnig á svæðinu með veitingum fyrir fullorðna.

Gestir eru sérstaklega hvattir til að mæta í góðgerðartreyju leiksins eða klæðast bláu í tilefni dagsins. Allir sem mæta í góðgerðartreyjunni eða í bláu fá miða í happdrætti þar sem fjölmargir vinningar verða í boði.

Sérstök góðgerðartreyja hefur verið útbúin fyrir leikinn og hægt er að kaupa bæði miða á leikinn og treyjuna hér

Leikið fyrir Ljónshjarta
Leikurinn hefur sérstakan tilgang þar sem allur ágóði rennur til Ljónshjarta, samtaka sem styðja við fólk sem hafa misst maka og börn sem hafa misst foreldri.

„Okkur langaði að gera þennan stóra dag hjá Gróttu að einhverju enn stærra og nýta kraftinn sem býr í samfélaginu okkar til góðs. Ljónshjarta sinnir ómetanlegu starfi fyrir fjölskyldur sem hafa gengið í gegnum erfiða reynslu og við vonum að sem flest mæti, taki þátt í gleðinni með okkur og hjálpi um leið við að safna myndarlega fyrir þetta mikilvæga málefni,“ segir Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona og einn skipuleggjenda góðgerðarleiksins.

„Við viljum að þetta verði dagur fyrir alla fjölskylduna. Það skiptir ekki máli hvort fólk fylgist með hverjum einasta leik hjá Gróttu eða kemur sjaldan á völlinn, á laugardaginn viljum við sjá allt Nesið, Gróttufólk og öll hin sem vilja styðja gott málefni mæta og skapa ógleymanlega stemningu.“

Fótboltaævintýri á Nesinu
Það yrði stór áfangi fyrir Gróttu að tryggja sér sæti í Bestu deild kvenna enda er saga meistaraflokks kvenna hjá félaginu tiltölulega stutt en fyrsti meistaraflokkur kvenna Gróttu var stofnaður árið 2016.

Mikil áhersla hefur verið lögð á uppbyggingu yngri flokka og árangur yngri flokka vakið athygli. Fjölmargar ungaar knattspyrnukonur úr starfi Gróttu hafa á undanförnum árum stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki, verið valdar í yngri landslið Íslands og jafnvel farið erlendis í atvinnumennsku.

Með sigri á Selfossi á laugardaginn myndi Grótta því skrifa nýjan kafla í sögu félagsins og tryggja sér sæti í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn.
Fjölskylduhátíð á Nesinu þegar Grótta getur komist upp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fjölskylduhátíð á Nesinu þegar Grótta getur komist upp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta15+2335
2HK16+1327
3Haukar15+427
4KR15+1526
5Selfoss15+826
6ÍA15+621
7FHL15+221
8Keflavík16+418
9Völsungur15-912
10Tindastóll15-663
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.