28.08.26 - 18:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heiða Ragney á skotskónum í stórsigri


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heiða Ragney Viðarsdóttir var á skotskónum þegar Eskilstuna vann stórsigur á Uppsala í sænsku deildinni.
Eskilstuna var með 5-0 forystu í hálfleik en Heiða skoraði fimmta markið á 43. mínútu, markamínútunni.
Eskilstuna var með 5-0 forystu í hálfleik en Heiða skoraði fimmta markið á 43. mínútu, markamínútunni.
Heiða var tekin af velli á 61. mínútu og ellefu mínútum síðar skoraði Eskilstuna sjötta og síðasta mark leiksins. 6-0 sigur staðreynd. Eskilstuna er í 4. sæti með 26 stig eftir 16 umfeðrir.
Sandra María Jessen kom inn á sem varamaður á 66. mínútu í 1-0 sigri Köln gegn Hoffenheim í þýsku deildinni. Köln er með 3 stig eftir tvær umferðir.
Sandra María Jessen kom inn á sem varamaður á 66. mínútu í 1-0 sigri Köln gegn Hoffenheim í þýsku deildinni. Köln er með 3 stig eftir tvær umferðir.
