Fotbolti.net
28.08.26 - 14:33
Elvar Geir Magnússon

Hneig tvisvar niður en er mættur aftur til æfinga

Musiala hneig niður í tveimur leikjum á undirbúningstímabilinu.

Musiala hneig niður í tveimur leikjum á undirbúningstímabilinu.

Canon

Mynd: EPA

Jamal Musiala er á góðum batavegi og er farinn að æfa að nýju með Þýskalandsmeisturum Bayern München. Þessi 23 ára leikmaður hneig niður tvo leiki í röð á undirbúningstímabilinu.

Leikmenn umkringdu Musiala á meðan hann fékk aðhlynningu og fékk aðstoð við að ganga af velli.

Musiala gaf svo út að þetta hefði verið af völdum taugasjúkdóms sem væri tímabundinn og auðlæknanlegtur. Hann skrifaði á Instagram:

„Mér líður vel. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir öll skilaboðin ykkar og stuðninginn. Ég veit að þetta kann að virðast ógnvekjandi við fyrstu sýn en ég fæ bestu mögulegu læknismeðferð.“
Vincent Kompany stjóri Bayern hefur nú staðfest að Musiala bregðist vel við meðferðinni og að hann verði aftur kominn í aðalliðið þegar hann verður heill.

„Hann er að venjast aukinni lyfjagjöf og hann bregst vel við henni. Hann mun ná sér að fullu og mun snúa aftur í hópinn eftir einhvern tíma," segir Kompany.

Bayern München mætir Stuttgart í fyrsta leik sínum í þýsku Bundesligunni þetta tímabilið í kvöld. Leikurinn hefst 18:30.
Hneig tvisvar niður en er mættur aftur til æfinga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.