Fotbolti.net
28.08.26 - 14:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leao vill frekar fara til Villa

Leao vill frekar fara til Villa
Canon

Mynd: EPA

Samkvæmt Gianluca Di Marzio, blaðamanni Sky á Ítalíu, vill Rafael Leao frekar fara til Aston Villa en Galatasaray.

Portúgalski kantmaðurinn er að öllum líkindum á förum frá AC Milan í sumar og hefur hann verið orðaður við Galatasaray og Villa.
Villa er sagt hafa hækkað samningstilboð sitt og hann sé nú líklegri til að fara til Englands.

Villa hefur boðið um 43 milljónir punda pakka í Leao. Hann kæmi á láni og Villa yrði að kaupa hann á 36 milljónir punda í framhaldinu. Galatasaray bíður eftir svörum en félagið náði samkomulagi við Milan um kaup og það tilboð hljoðaði upp á 38,5 milljónir punda.

Aston Villa er að selja Ollie Watkins til Al Hilal og Nicolas Jackson er að koma frá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.