28.08.26 - 17:30
Fótbolti.net
Leikmenn í Bestu deildinni ganga út á völl í sinni uppáhalds treyju

Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason, leikmenn KR.

Mynd: Besta deildin

Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason, leikmenn KR.

Mynd: Besta deildin
Föstudaginn 4. september næstkomandi verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning.
KSÍ og ÍTF hafa staðið þétt við bakið á börnum með krabbamein, við undirbúning dagsins. Í öllum leikjum í Bestu deildum karla og kvenna dagana 28. ágúst - 1. september munu leikmenn og dómarar ganga inn á völlinn í sinni uppáhalds treyju til að vekja athygli á verkefninu.
Besta deildin hefur sent frá sér myndband þar sem Aron Sigurðarsson og Arnór Ingva Traustason leikmenn KR opinbera hvaða treyja er þeirra uppáhalds og hyggjast klæðast þann 4. september.
Hægt er að lesa nánar um verkefnið á Treyjudagur.is

Við erum öll í sama liði. Fyrir börn með krabbamein.
— Besta deildin (@bestadeildin) August 28, 2026
Treyjudagur 4. september.#treyjudagurinn pic.twitter.com/oDzEsqvICV