Fotbolti.net
28.08.26 - 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Þróttur skoraði sjö og Fylkir enn í séns

Aron Snær Ingason

Aron Snær Ingason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeildinni í kvöld þar sem Þróttur og Fylkir þurftu á sigri að halda til að halda í við Aftureldingu í baráttunni um toppsætið.
Þróttur fékk Ægi í heimsókn sem er fallið í 2. deild. Björn Darri Oddgeirsson kom Þrótti yfir snemma leiks eftir að Aron Snær Ingason skallaði boltann fyrir fætur hans.

Aron Snær bætti síðan öðru markinu við stuttu síðar. Ægismenn tóku við sér og Stefan Dabetic minnkaði muninn. Bjarki Rúnar Jónínuson skoraði síðan glæsilegt mark og jafnaði metin.

Þróttarar voru ekki lengi að svara því Aron Snær skoraði sitt annað mark og þriðja mark Þróttar strax í kjölfarið.

Þróttarar fóru hamförum í seinni hálfleik. Aron Snær fullkomnaði þrennu sína, Magnús Þórðarson skoraði tvennu og Jakob Ocares Kristjánsson skoraði eitt og Þróttur vann að lokum stórsigur.

Kári Sigfússon kom Fylki yfir gegn Gróttu þegar hann skoraði á opið markið eftir að Alexander Arnarsson varði frá Theodóri Inga Óskarssyni.

Grótta náði að jafna metin þegar skammt var til loka leiksins. Björgvin Brimi Andrésson skoraði eftir sendingu frá Mattíasi Kjeld.

Fylkir náði forystunni á nýjan leik stuttu síðar þegar Hlynur Sævar Jónsson skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Theodóri. Það var síðan Magnús Daði Ottesen sem innsiglaði sigur Fylkis.

Þróttur er í 2. sæti með 40 stig, eins og Fylkir sem er í 3. sæti fyrir lokaumferðina. Liðin eru tveimur stigum á eftir Aftureldingu sem á leik til góða. Grótta er í 6. sæti með 27 stig en Ægir á botninum með átta stig. Afturelding getur unnið deildina með sigri á Vestra á morgun.

Þróttur R. 7 - 2 Ægir
1-0 Björn Darri Oddgeirsson ('4 )
2-0 Aron Snær Ingason ('11 )
2-1 Stefan Dabetic ('23 )
2-2 Bjarki Rúnar Jónínuson ('32 )
3-2 Aron Snær Ingason ('33 )
4-2 Magnús Þórðarson ('59 )
5-2 Jakob Ocares Kristjánsson ('65 )
6-2 Aron Snær Ingason ('70 )
7-2 Magnús Þórðarson ('76 )
Lestu um leikinn

Fylkir 3 - 1 Grótta
1-0 Kári Sigfússon ('25 )
1-1 Björgvin Brimi Andrésson ('82 )
2-1 Hlynur Sævar Jónsson ('86 )
3-1 Magnús Daði Ottesen ('90 )
Lestu um leikinn
Lengjudeildin: Þróttur skoraði sjö og Fylkir enn í séns
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding20+3142
2Fylkir21+1440
3Þróttur R.20+1837
4HK20+1235
5Njarðvík20+1035
6Grótta21-527
7Vestri20-927
8Leiknir R.20025
9ÍR20-525
10Grindavík20-1121
11Völsungur20-1620
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.