28.08.26 - 13:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lyngby vill kaupa Jón Sölva


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Sölvi Símonarson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net líklega á förum frá ÍA til danska félagsins Lyngby fyrir gluggalok í Danmörku. Glugginn þar lokar 2. september.
Jón Sölvi er 19 ára markvörður sem ÍA keypti af Breiðabliki í vor og fengu Skagamenn þá undanþágu til að kaupa markvörðinn efnilega utan félagaskiptaglugga.
Jón Sölvi er 19 ára markvörður sem ÍA keypti af Breiðabliki í vor og fengu Skagamenn þá undanþágu til að kaupa markvörðinn efnilega utan félagaskiptaglugga.
Danska úrvalsdeildarfélagið er mikið Íslendingafélag. Ísak Snær Þorvaldsson er lykilmaður í liðinu og þeir Daníel Freyr Kristjánsson og Davíð Helgi Aronsson eru sömuleiðis í hópnum. Davíð Helgi er á láni frá Víkingum.
Jón Sölvi er unglingalandsliðsmaður og hefur leikið átta deildarleiki með ÍA í sumar og einn bikarleik.
Jón Sölvi er unglingalandsliðsmaður og hefur leikið átta deildarleiki með ÍA í sumar og einn bikarleik.
