28.08.26 - 12:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir ummæli Arons röng - „Ekkert sem setur áætlanir í uppnám"

Markmið teymisins og væntingar okkar voru að komast inn í deildarkeppn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Gunnlaugsson.

Víkingur féll úr leik í Evrópu í gær þegar liðið tapaði gegn Borac Banja Luka, meisturunum í Bosníu og Hersegóvínu, í umspili um sæti í Sambandsdeildinni. Báðir leikir enduðu 3-1 fyrir Borac og einvígið því 6-2.
Háar fjárhæðir eru í boði í Evrópukeppnum, upphæðir sem skipta verulegu máli þegar kemur að rekstri félaganna. Heimir Gunnlaugsson, formaður fótboltadeildar Víkings, segir að tapið hafi ekki veruleg áhrif á Víkinga.

„Markmið teymisins og væntingar okkar voru að komast inn í deildarkeppni. En fjárhagslegar áætlanir gerðu bara ráð fyrir að komast á þetta stig, umspilið. Þannig þetta er ekkert sem setur áætlanir í uppnám. Það hefði verið bónus að fara áfram og það var markmiðið hjá hópnum, en það var ekki fjárhagslega sett þannig upp. Við erum mjög nálægt því að vera á pari miðað við það sem var lagt upp með fjárhagslega," segir Heimir.
Heimir var spurður út í ummæli fyrirliða KR, Arons Sigurðarsonar, sem sagði í viðtali við Vísi í vikunni að Víkingur væri að „fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti".
„Það er bara ekki rétt," segir Heimir.
„Þetta hefur engin áhrif á okkur, við getum haldið áfram að keyra þetta áfram eins og við höfum gert, en það gefur auðvitað auga leið að þegar byggt er upp dýrt lið þá þarf að einhver árangur að fylgja. Það þarf ekki að fara í neinar aðgerðir," segir Heimir.
Næsti leikur Víkings verður gegn KR á Meistaravöllum á þriðjudag. Víkingur er með átta stiga forskot á KR og Fram þegar sjö umferðir eru eftir af Íslandsmótinu og Víkingur á eftir að mæta báðum liðum tvívegis.