Fotbolti.net
28.08.26 - 17:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skoraði sitt fyrsta mark í Bestu en er sjálfur ósammála því - „Þarf að rífa mig í gang"

Er á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.

Er á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór heimsækir ÍBV í Bestu deildinni a morgun, leikurinn er liður í næst síðustu umferð Bestu deildarinnar fyrir tvískiptingu og hefst klukkan 17:00. Tvö stig skilja liðin að, ÍBV er með 17 stig en Þór er með 15. Liðin eru bæði í harðri fallbaráttu.

Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði 15 mörk í Lengjudeildinni í fyrra og enginn skoraði fleiri. Hann skoraði fyrsta markið sitt gegn Stjörnunni um liðna helgi en lítur reyndar ekki á það sem sitt fyrsta mark í sumar. Fúsi, sem er 24 ára sóknarmaður, ræddi við Fótbolta.net.
Mætir tveimur mjög kunnuglegum á morgun - „Verið öldugangur, bæði hjá mér og liðinu"
TENGT EFNI

Mætir tveimur mjög kunnuglegum á morgun - „Verið öldugangur, bæði hjá mér og liðinu"

„Leikurinn gegn ÍBV leggst bara mjög vel í mig. Við þurfum einfaldlega að mæta klárir til leiks og gera það sem við höfum verið að æfa. Ef við gerum það og höldum okkur við okkar leikplan þá trúi ég að þetta detti með okkur," segir Fúsi.

Birgir Ómar Hlynsson var á láni hjá ÍBV í fyrra, er hann með eitthvað í erminni sem gæti hjálpað á morgun?

„Biggi býr yfir nokkrum leyndarmálum sem munu hjálpa okkur vel á morgun."

Skoraði síðast í Eyjum
Hvaða minningar áttu af leikjum gegn ÍBV?

„Ég var ekki með í fyrri leiknum gegn þeim í sumar, þannig að ætli sterkasta minningin sé ekki frá 2024. Þá kom ég óvænt snemma inn á og náði að skora."

Fljúga til Eyja
Hvernig hefur undirbúningurinn verið?

„Undirbúningurinn er í raun bara sá sami og fyrir aðra leiki. Við höldum okkur við okkar rútínu og undirbúum okkur eins vel og hægt er. Munurinn er kannski helst ferðalagið því við fljúgum við til Eyja."

Ætlar sér fleiri mínútur og mörk á lokasprettinum
Sigfús hefur byrjað átta leiki í Bestu deildinni á tímabilinu. Hvernig sér tímabilið við þér? Eru vonbrigði að hafa ekki spilað og skorað meira?

„Þetta var frekar leiðinleg byrjun á tímabilinu hjá mér persónulega. Ég kom úr meiðslum og fór nánast beint úr þeim í veikindi, þannig að það hefur tekið sinn tíma að komast almennilega í gang. Núna þarf ég bara að rífa mig í gang, fá fleiri mínútur og vonandi koma að fleiri mörkum á lokasprettinum."

Leið ekki eins og markið hafi verið það fyrsta í sumar
Fyrsta markið kom í síðasta leik, var léttir að ná því?

„Mér leið ekki eins og þetta hafi verið fyrsta markið mitt því það er nú búið að taka af mér tvö önnur mörk sem voru lögleg eða skráð á vitlausan mann. En já að sjálfsögðu hjálpar þetta eitthvað með sjálfstraustið hjá mér. Nú er bara áfram gakk, leggja allt í þetta og hjálpa liðinu að halda sér í deildinni," segir Fúsi.

Hann gerði tilkall til marks Þórs gegn Fram á útivelli og svo fékk markið sem hann skoraði gegn Breiðabliki snemma móts ekki að standa þar sem hann var dæmdur brotlegur.
Átti magnað tímabil í fyrra.

Átti magnað tímabil í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú er bara áfram gakk, leggja allt í þetta og hjálpa liðinu að halda sér í deildinni

Nú er bara áfram gakk, leggja allt í þetta og hjálpa liðinu að halda sér í deildinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði fimmtán mörk í fyrra.

Skoraði fimmtán mörk í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ef við gerum það og höldum okkur við okkar leikplan þá trúi ég að þetta detti með okkur

Ef við gerum það og höldum okkur við okkar leikplan þá trúi ég að þetta detti með okkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.