Fotbolti.net
28.08.26 - 16:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tekið framförum og lært mikið á Skaganum - „Markmiðið er auðvitað að komast út"

Mjög mikilvægur leikur á Hlíðarenda

Það mikilvægasta er hvernig maður bregst við eftir svona atvik

Það mikilvægasta er hvernig maður bregst við eftir svona atvik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tekur á móti ÍA á sunnudagskvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á N1 vellinum.

Leikurinn er mjög mikilvægur upp á baráttuna um sæti í efri hluta deildarinnar. ÍA er með þremur stigum meira en Valur en tveggja marka Valssigur kæmi Val yfir Skagamenn í töflunni.

Baldvin Þór Berndsen hefur verið í stóru hlutverki hjá ÍA á tímabilinu og ræddi hann við Fótbolta.net um komandi leik.
„Mér líst mjög vel á leikinn. Valur er auðvitað með mjög gott lið og við vitum að þetta verður krefjandi leikur, en við höfum fulla trú á því að við getum náð þrjú stig. Við þurfum fyrst og fremst að vera þéttir saman sem lið, vinna okkar einvígi og sækja hratt á þá þegar við vinnum boltann. Ef við náum að framkvæma okkar leikplan vel og halda einbeitingu allan leikinn þá eigum við held góðan möguleika á sigri," segir Baldvin.

Skoraði gegn Val í Lengjubikanum
Hvaða minningar áttu af leikjum gegn Val?

„Þetta eru alltaf erfiðir leikir og oft mikill hraði í þeirra leik. Það er alltaf gaman að mæta Val og ég er mjög spenntur fyrir þessum leik. Minningarnar eru bara góðar, leikirnir gegn Val hafa endað á ýmsa vegu milli þessara liða. Ég skoraði á móti þeim í Lengjubikarnum þannig maður er bara bjartur fyrir þessum leik."

Mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið
Hvernig hefur undirbúningurinn verið?

„Undirbúningurinn hefur verið mjög góður. Við höfum verið einbeittir og farið vel yfir það sem við þurfum að gera. Auðvitað vitum við stöðuna í deildinni og hvað sigur gæti þýtt fyrir okkur. Það er klárlega eitthvað sem er bakvið eyrað á okkur, en á sama tíma reynum við að hugsa ekki of mikið um töfluna heldur einbeita okkur að einum leik í einu. Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið og við viljum nýta tækifærið til að koma okkur í góða stöðu."

Gaman að mæta Lúkasi
Lúkas Logi Heimisson er í Valsliðinu, þið spiluðuð aðeins saman í Fjölni. Hvernig er að spila gegn honum?

„Það er alltaf gaman að mæta leikmönnum sem maður hefur spilað með áður. Ég þekki Lúkas ágætlega frá Fjölni og veit alveg hvað hann getur. Hann er leikmaður með mikil gæði en á sama tíma pælir maður ekkert í svona hlutum þegar flautað er til leiks. Það verður bara gaman að mæta honum og vonandi förum við af velli með þrjú stig."

Liðið spilaði mun betur í seinni hálfleiknum gegn FH
Hvernig horfir þú til baka á leikinn gegn FH í síðustu umferð?

„Ef maður horfir til baka skiptist leikurinn eiginlega upp í tvo hálfleika þar sem við mættum ekki klárir í fyrri hálfleik sem varð til þess að það kviknaði einhver neisti hjá FH. En við mættum út í seinni hálfleik sem allt annað lið, meiri ákefð og mun kraftmeiri. Við fengum nokkur færi til að klára leikinn en náðum því miður ekki að taka stigin þrjú. Þegar allt er tekið saman fannst mér við eiga meira skilið en eitt stig."

Mikilvægast hvernig maður bregst við eftir svona atvik
Mark FH kom eftir að boltinn fór af Baldvini og í net Skagamanna. Hvernig upplifðir þú sjálfsmarkið, eitthvað sem þú hefðir getað gert betur?

„Já, maður getur alltaf gert betur. Svona hlutir geta gerst í fótbolta og maður þarf að bregðast rétt við og halda áfram. Það er hægt að rekja þetta mark til baka og skoða þetta betur eins og við höfum gert og það er hellingur af smáatriðum sem maður sér kannski ekki endilega strax. Auðvitað er þetta mjög súrt en fyrst og fremst reyndi ég að setja þetta strax til hliðar og einbeita mér að restinni af leiknum. Ég kom inn í seinni hálfleik núllstilltur eftir þetta atvik og það mikilvægasta er hvernig maður bregst við eftir svona atvik. Mér fannst bæði ég og liðið spila miklu betur í seinni hálfleik sem er jákvætt."

Ekki hægt að dæma víti stundum og stundum ekki
Umtalað vítaatvik þegar þinn samherji Erik á skalla í höndina á Baldri Kára inn á vítateig FH. Hvað fannst þér í augnablikinu og svo þegar þú sást þetta aftur?
„Í augnablikinu fannst mér þetta vera bara víti. Höndin á honum er úti en dómarinn taldi að þetta væri náttúruleg staða. Svona atvik geta auðvitað haft mikil áhrif á leikinn og maður verður svekktur þegar maður fær ekki víti í svona stöðu. En svo hugsar maður ef þetta myndi gerast fyrir mig þá yrði maður ekki sáttur að fá á sig víti. Við höfum fengið nokkur víti á okkur í sumar fyrir nákvæmlega svona atvik þannig það verður að vera einhver lína á þessu. Annað hvort er þetta alltaf víti eða aldrei, það er ekki hægt dæma bara stundum og stundum ekki."

Sýnt góð viðbrögð eftir tapið gegn Keflavík
ÍA er núna án taps í fimm leikjum. Eftir tapið gegn Keflavík úti, var eitthvað sérstakt sem breyttist hjá ykkur?

„Ég myndi ekki segja að það hafi verið einhver ein stór breyting. Við vorum auðvitað mjög svekktir eftir þann leik og það var mjög súrt að tapa svona stórt í Keflavík, en við fórum strax að skoða hvað við gátum gert betur. Mér finnst við hafa sýnt góð viðbrögð eftir það og verið ákveðnari í okkar leik. Við höfum verið að byggja á því og það er mikilvægt að halda því áfram."

Tekið framförum í sumar
Baldvin hefur verið fastamaður í liðinu ef frá er tími mánaðarkafli á miðju tímabili þar sem hann kom þrisvar sinnum inn á og var einu sinni ónotaður varamaður. Hvernig metur þú tímabilið í heild, bæði hjá þér og liðinu?

„Ég er heilt yfir bara nokkuð sáttur með tímabilið. Auðvitað vill maður alltaf meira og reynir að bæta sig á hverjum degi sem leikmaður. Mér finnst ég hafa tekið framförum og lært mikið, bæði sem leikmaður og sem hluti af liðinu. Ég er líka sáttur með mitt hlutverk og vil halda áfram að taka ábyrgð og hjálpa liðinu eins mikið og ég get."

„Hvað liðið varðar þá finnst mér við hafa sýnt að við getum staðið okkur vel gegn öllum liðum í deildinni. Auðvitað eru alltaf hlutir sem við hefðum viljað gera betur, en það er ekki hægt að horfa til baka og fara vorkenna sér. Ég held að allir geta verið sammála að við eigum helling inni sem lið og það er nóg pláss fyrir bætingar hjá öllum."


Markmiðið að taka skrefið erlendis
Þú ákvaðst að framlengja samninginn í sumar, var það auðveld ákvörðun?

„Já, þetta var ákvörðun sem ég var mjög sáttur við að taka. Auðvitað hugsar maður vel um svona ákvörðun og skoðar hvað hentar manni best, en mér líður mjög vel hjá ÍA og mér finnst ég vera á góðum stað hér. Eins og ég nefndi áðan er maður alltaf að reyna verða betri leikmaður og markmiðið er auðvitað að komast út og taka skrefið fram á við. En núna er einbeitingin á ÍA og hitt kemur þegar það kemur. Ég hef fulla trú á þessu liði og langaði að halda áfram að taka þátt í þessari vegferð sem liðið er á," segir Baldvin að lokum.
Mér finnst ég hafa tekið framförum og lært mikið, bæði sem leikmaður og sem hluti af liðinu.

Mér finnst ég hafa tekið framförum og lært mikið, bæði sem leikmaður og sem hluti af liðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lúkas Logi er árinu eldri en Baldvin.

Lúkas Logi er árinu eldri en Baldvin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér finnst við hafa sýnt góð viðbrögð eftir það og verið ákveðnari í okkar leik.

Mér finnst við hafa sýnt góð viðbrögð eftir það og verið ákveðnari í okkar leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég skoraði á móti þeim í Lengjubikarnum þannig maður er bara bjartur fyrir þessum leik

Ég skoraði á móti þeim í Lengjubikarnum þannig maður er bara bjartur fyrir þessum leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekið framförum og lært mikið á Skaganum - „Markmiðið er auðvitað að komast út"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekið framförum og lært mikið á Skaganum - „Markmiðið er auðvitað að komast út"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ef við náum að framkvæma okkar leikplan vel og halda einbeitingu allan leikinn þá eigum við held góðan möguleika á sigri

Ef við náum að framkvæma okkar leikplan vel og halda einbeitingu allan leikinn þá eigum við held góðan möguleika á sigri

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markmiðið er auðvitað að komast út og taka skrefið fram á við

Markmiðið er auðvitað að komast út og taka skrefið fram á við

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Annað hvort er þetta alltaf víti eða aldrei, það er ekki hægt dæma bara stundum og stundum ekki (myndin tengist atvikinu ekki beint).

Annað hvort er þetta alltaf víti eða aldrei, það er ekki hægt dæma bara stundum og stundum ekki (myndin tengist atvikinu ekki beint).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég held að allir geta verið sammála að við eigum helling inni sem lið og það er nóg pláss fyrir bætingar hjá öllum

Ég held að allir geta verið sammála að við eigum helling inni sem lið og það er nóg pláss fyrir bætingar hjá öllum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.