Fotbolti.net
28.08.26 - 22:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýskaland: Bayern hóf titilvörnina af miklum krafti

Þýskaland: Bayern hóf titilvörnina af miklum krafti
Canon

Mynd: EPA

Bayern 5 - 1 Stuttgart
1-0 Dayot Upamecano ('21 )
1-1 Josha Vagnoman ('52 )
2-1 Michael Olise ('55 )
3-1 Josha Vagnoman ('57 , sjálfsmark)
4-1 Aleksandar Pavlovic ('82 )
5-1 Luis Diaz ('90 )
Bayern Munchen vann öruggan sigur á Stuttgart í fyrsta leik tímabilsins í þýsku deildinni.

Dayot Upamecano sá til þess að Bayern var með forystu í hálfleik þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Joshua Kimmich. Josha Vagnoman jafnaði metin snemma í seinni hálfleik.

Bæjarar gengu á lagið í kjölfarið en Michael Olise endurheimti forystuna þremur mínútum eftir jöfnunarmarkið eftir laglega sendingu Kimmich í gegnum vörn Stuttgart.

Vagnoman varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark stuttu síðar. Olise kom síðan boltanum aftur í netið eftir rúmlega klukkutíma leik en var dæmdur rangstæður.

Ismael Saibari, sem gekk til liðs við Bayern frá PSV eftir gott heimsmeistaramót með Marokkó, kom inn á af miklum krafti. Hann lagði upp fjórða markið á Aleksandar Pavlovic og einnig á Luis Diaz sem innsiglaði 5-1 sigur í blálokin.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Bayern1+43
2Augsburg000
3Leverkusen000
4Dortmund000
5Gladbach000
6Frankfurt000
7Elversberg000
8Freiburg000
9Hamburger000
10Hoffenheim000
11Köln000
12Mainz000
13Paderborn000
14RB Leipzig000
15Schalke 04000
16Union Berlin000
17Werder000
18Stuttgart1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.