Fotbolti.net
28.08.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Valgeir frá út tímabilið

Valgeir frá út tímabilið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valgeir Valgeirsson spilar líklega ekki meira á þessu tímabili eftir að kom í ljós að rifa er í liðþófa í hné.

Hann er á leið í aðgerð vegna meiðslanna. Valgeir var að glíma við meiðsli í sama hné, rifu í liðbandi, og var að styttast í endurkomu þegar hann varð fyrir þessu bakslagi.
Valgeir er er 23 ára hægri bakvörður sem spilaði síðast 3. maí og hefur glímt við meiðsli síðan. Hann hefur því einungis spilað sex leiki í deild og bikar á þessu tímabili.

Hann er á sínu öðru tímabili hjá Breiðabliki eftir að hafa komið frá sænska félaginu Örebro.

Framundan hjá Blikum eru sjö deildarleikir og bikarúrslitaleikur gegn Aftureldingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.