Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 28. september 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Einn af forsprökkum Football Leaks handtekinn
Mynd: Spiegel
Rui Pinto er þrítugur Portúgali. Hann var handtekinn í Ungverjalandi í síðustu viku og framseldur til Portúgal.

Hann er ásakaður um ýmsa hluti en hann er einn af forsprökkunum á bak við Football Leaks vefinn sem hefur uppljóstrað ýmsum leyndarmálum úr knattspyrnuheiminum á undanförnum árum.

Gögn frá Football Leaks urðu meðal annars til þess að víðamiklar rannsóknir voru gerðar á starfsemi Manchester City og Paris Saint-Germain sem eru í eigu moldríkra Araba.

Pinto á yfir höfði sér afar þungan dóm í Portúgal og er meðal annars kærður fyrir tilraun til fjárkúgunar. Honum er lýst sem tölvusnillingi og tengist stór hluti ákærunnar brotum hans á veraldarvefnum.
Athugasemdir
banner
banner