banner
   mán 28. september 2020 07:30
Aksentije Milisic
Man Utd greiddi Sporting 4,5 milljónir punda eftir sigurmark Bruno
Mynd: Getty Images
Manchester United greiddi Sporting Lissabon 4,5 milljónir punda eftir sigur liðsins gegn Brighton á laugardeginum. Bruno Fernandes gerði sigurmark United úr vítaspyrnu á 100 mínútu leiksins.

Hinn 26 ára gamli Bruno kom í janúar mánuði til liðsins frá Sporting og borgaði United þá 45 milljónir punda en alls mun félagið borga 66,7 milljónir punda fyrir Bruno eftir öll ákvæði sem eru í samningnum.

Bruno spilaði sinn 25 deildarleik fyrir United um helgina og þurfti United því að greiða 4,5 milljónir punda til Sporting í kjölfarið.

Bruno hefur komið hrikalega öflugur inn í United liðið en hann hefur 13 mörk í 25 leikjum og tekið á skarið á mikilvægum andartökum.
Athugasemdir
banner
banner
banner