Rúrik Gíslason er í viðræðum við félag í dönsku úrvalsdeildinni en þetta segir umboðsmaður hans Ólafur Garðarsson við fjölmiðla í Danmörku.
Rúrik hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Sandhausen í Þýskalandi í sumar.
Rúrik hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Sandhausen í Þýskalandi í sumar.
„Ég er að ræða við félag í Danmörku í augnablikinu og það er áhugi á Rúrik," sagði Ólafur við Tipsbladet.
Hinn 32 ára gamli Rúrik þekkir til í Danmörku en hann spilaði með OB, Viborg og FC Kaupmannahöfn á árunum 2007 til 2015.
Athugasemdir