„Ef þú horfir yfir tímabiliðið, gegn Val, 7-2 í fyrsta leiknum, 2-0 í öðrum leiknum og svo 2-1 í dag og við gáfum þeim leik. Við erum virkilega stolt af leikmönnunum.,“ sagði John Andrews, þjálfari Víkings, eftir tap gegn Val í dag.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 2 Valur
„Við erum einnig virkilega stolt af fjölda fólks í stúkunni í dag, það var stórkostlegt. Það var frábær stemning og góð auglýsing fyrir kvennaboltann. Frábær leið til að klára heimatímabilið okkar “
„Varnarlega vorum við með plan og í fyrri hálfleiknum héldu þær sig við það stórkostlega en svo þurtfum við bara að tengja sendingarnar aðeins betur og mér fannst við gera það í seinni.“
„Við höfum sagt það í allt ár að við erum að byggja okkur inn í þessa deild og ég held að þú getir verið handviss um að okkar Víkingslið hafi gert klúbbinn stoltan í dag.“
„Ef þú hefðir gefið mér fjórða eða þriðja sætið áður en tímabilið byrjaði hefði ég bitið af þér hendina! Við munum njóta ferðalagsins til Akureyrar í næstu viku, ég fæ að mæta félaga mínum , Jóa, og það verður frábær leikur.“
Viðtalið við John má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.