28.09.26 - 12:30
Kári Snorrason
Arnar skoraði í síðasta sigri Íslands á Lúxemborg

Skoraði alls þrjú landsliðsmörk.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fetaði í fótspor föður síns þrjátíu árum síðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sig skoraði sigurmarkið í síðasta sigurleik Íslands á Lúxemborg.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði alls þrjú landsliðsmörk.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland mætir Lúxemborg annað kvöld í öðrum leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Liðin hafa mæst níu sinnum í gegnum tíðina, að æfingaleikjum meðtöldum. Ísland hefur unnið fjóra leikjanna, fjórum sinnum hafa liðin skilið jöfn og Lúxemborg haft betur einu sinni.
Af þessum níu leikjum hafa aðeins fjórir þeirra verið keppnisleikir.

Síðast mættust liðin árið 2023 í undankeppni EM 2024. Lúxemborg vann fyrri leikinn á heimavelli 3-1 en Hákon Arnar Haraldsson skoraði eina mark Íslands.
Seinni leiknum á Laugardalsvelli lauk með 1-1 jafntefli. Þar skoraði Orri Steinn Óskarsson sitt fyrsta mark fyrir A-landsliðið.
Hinir tveir keppnisleikir þjóðanna fóru fram árið 1993 í undankeppni HM. Í fyrri leiknum í Lúxemborg kom Arnór Guðjohnsen Íslandi yfir en heimamenn jöfnuðu eftir sjálfsmark Hlyns Birgissonar og enduðu leikar 1-1.
Í síðari leiknum skoraði Haraldur Ingólfsson eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Það var fyrra landsliðsmark Haraldar af tveimur, en hann er faðir Hákons Arnars Haraldssonar, varafyrirliða landsliðsins.
Rúm 27 ár eru liðin frá síðasta sigri Íslands á Lúxemborg. Hann kom árið 1999 í vináttuleik í Lúxemborg. Arnar Gunnlaugsson, núverandi landsliðsþjálfari, jafnaði metin á 77. mínútu eftir að heimamenn höfðu komist snemma yfir.
Markið var eitt af þremur sem Arnar skoraði í 32 landsleikjum fyrir Ísland.
Helgi Sigurðsson, núverandi aðstoðarþjálfari Fram, tryggði Íslandi síðan sigurinn með marki fimm mínútum fyrir leikslok.