Fotbolti.net
28.09.26 - 17:47
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í Þjóðadeildinni: Tveir frá Liverpool í liði Frakka - Bræður í sögubækurnar

Jeremy Jacquet er í liði Frakka

Jeremy Jacquet er í liði Frakka

Canon

Mynd: EPA

Nokkrir áhugaverðir leikir eru á dagskrá í Þjóðadeildinni í kvöld, en þar ber meðal annars hæst viðureign Belga og Frakka í A-deildinni. Allir leikirnir hefjast klukkan 18:45.
Jeremy Jacquet, 21 árs gamall miðvörður Liverpool, þreytir frumraun sína með franska A-landsliðinu.

Hann byrjar í hjarta varnarinnar með Maxence Lacroix. Jacquet er ekki eini leikmaður Liverpool í byrjunarliðinu því Bradley Barcola er einnig með.

Senne Lammens stendur í marki Belgíu og þá er liðsfélagi hans hjá Manchester United, Youri Tielemans, á sínum stað á miðsvæðinu ásamt Kevin de Bruyne.

Söguleg stund verður í leik Tyrklands og Ítalíu þar sem bræðurnir Pio og Sebastiano Esposito eru báðir í byrjunarliði Ítalíu. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2000 sem bræður spila saman með ítalska landsliðinu, en þá gerðu Simone og Filippo Inzaghi slíkt hið sama.

Í B-deildinni mætast Svíþjóð og Pólland. Viktor Gyökeres er fremstur í liði Svía en Alexander Isak er ekki með vegna meiðsla.
Ungverjar heimsækja Norður-Írland og þá mætast Rúmenía og Bosnía.

A-deild:

Belgía: Lammens; Seys, Mechele, Ngoy, Castagne; Tielemans, Lavia; Godts, De Bruyne, Moreira; De Ketelaere.

Frakkland: Maignan; Diouf, Lacroix, Jacquet, Kalulu; Da Cunha, Camavinga, Akliouche; Barcola, Lepaul, Doué.



Tyrkland: Altay; Zeki Celik, Demiral, Özcan, Orkun Kökcü, Arda Güler, Can Uzun, Eren Elmali, Ozan Kabak, Oguz, Baris

Ítalía: Donnarumma; Kayode, Scalvini, Bastoni, Ruggeri; Frattesi, Tonali, Fagioli; Raspadori, F. P. Esposito, S. Esposito
Pio Esposito byrjar ásamt Sebastiano

Pio Esposito byrjar ásamt Sebastiano

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.