Fotbolti.net
28.09.26 - 10:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Ef ég segði það sem mér finnst þá myndi ég fá leikbann"

Manor Solomon.

Manor Solomon.

Canon

Mynd: West Ham

Það fór fram mjög athyglisverður leikur í Þjóðadeildinni í gær þegar lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í Írlandi unnu 0-3 sigur gegn Ísrael.

Það voru hitaumræður á Írlandi fyrir leikinn út af stríðinu á Gaza. Írska landsliðið hélt meðal annars fund daginn fyrir leik þar sem leikmenn ræddu hvort þeir ættu að taka þátt yfirhöfuð. Eftir um fjögurra klukkustunda fundarhöld kaus meirihluti leikmanna að spila.
Gavin Bazunu, markvörður liðsins, dró sig hins vegar úr hópnum áður en atkvæðagreiðslan fór fram og sagði ákvörðun sína byggjast á þeirri trú að það væri rangt að drepa saklaust fólk.

Fyrir leikinn tóku svo leikmenn írska landsliðsins ekki í höndina á leikmönnum Ísrael, litu niður þegar ísraelski þjóðsöngurinn var spilaður og spiluðu með sorgarbönd til stuðnings fórnarlamba stríðsins á Gaza.

Manor Solomon, fyrirliði Ísrael og leikmaður West Ham, var vægast sagt ósáttur við framkomu leikmanna Írlands í leiknum og lét það í ljós eftir leik.

„Þeir voru að tala einhverja vitleysu allan leikinn og ég vil ekki tjá mig um þá. Ef ég segði það sem mér finnst um þá myndi ég líklega fá leikbann í nokkra leiki, þannig að ég ætla ekki að segja neitt. Auðvitað hata þeir okkur og okkur líkar ekki við þá," sagði Solomon og hélt áfram:

„Ég er nú þegar farinn að hlakka til næsta leiks gegn þeim. Hann verður allt öðruvísi.“

„Ég hef engan áhuga á þeim. Við eigum land sem er tíu sinnum betra en þeirra, sterkara land, ótrúlegt land með ótrúlegu fólki. Ég er stoltur af því að klæðast treyju landsliðsins og vera Ísraeli. Við erum stolt af landinu okkar og hermönnunum okkar. Þeir mega gera hvað sem þeir vilja. Við erum Ísraelar og elskum landið okkar. Við ætlum að vinna,"
sagði Solomon eftir 0-3 tapið í gær.

Liðin mætast aftur síðar í þessari viku en fyrst spilar Írland við Austurríki í Dublin. Heimir Hallgrímsson er auðvitað landsliðsþjálfari Írlands.

Solomon hér í landsleik Ísrael og Írlands í gær.

Solomon hér í landsleik Ísrael og Írlands í gær.

Canon

Mynd: EPA

Írar unnu 3-0 sigur á Ísrael í gær.

Írar unnu 3-0 sigur á Ísrael í gær.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.