Fotbolti.net
28.09.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalski boltinn

Fabregas með klásúlu fyrir sín gömlu félög

Cesc Fabregas.

Cesc Fabregas.

Canon

Mynd: EPA

Cesc Fabregas er sagður vera með sérstakt ákvæði í samningi sínum hjá Como sem gæti auðveldað honum að yfirgefa félagið fyrir eitt af stærstu félögum Evrópu.

Fabregas hefur vakið mikla athygli fyrir störf sín hjá Como og er nú talinn einn af áhugaverðustu ungu þjálfurum Evrópu.
Gianluca Di Marzio, einn þekktasti félagaskiptasérfræðingur Ítalíu, segir að Fabregas sé með klásúlu sem gildi fyrir Arsenal, Barcelona og Chelsea.

Hann spilaði fyrir öll þessi félög á leikmannaferli sínum.

„Fabregas mun aðeins yfirgefa Como fyrir algjört stórlið á borð við Barcelona eða Arsenal. Hann er eins og reiknivél. Hann veit að hann mun einn daginn þjálfa eitt af þessum stórliðum,“ sagði Di Marzio.

Fabregas er ekkert að drífa sig og hefur hafnað nokkrum tilboðum síðustu 12 mánuði. Hann sagði meðal annars nei við Inter, Roma og Bayer Leverkusen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.