Fotbolti.net
28.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Frægðin ekki fyrir Vozinha - „Myndi kjósa gamla lífið"

Frægðin ekki fyrir Vozinha - „Myndi kjósa gamla lífið"
Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Vozinha sló í gegn á HM með Grænhöfðaeyjum og varð heimsfrægur á einni nóttu.

Fjöldi fólks fylgdi honum á Instagram á meðan á HM stóð en í dag er hann með rúmlega 28 milljónir fylgjenda á miðlinum. Hann segir að frægðin sé ekki fyrir sig.
Í brasi eftir ótrúlegt HM
TENGT EFNI

Í brasi eftir ótrúlegt HM

„Ég hef misst friðinn og róina. Ég fæ ekki lengur næði, eða að minnsta kosti miklu minna en ég hafði áður. Núna fer ég út, ég fer á veitingastað, og það er alltaf einhver sem vill taka mynd með mér. Eða, enn verra, einhver að taka mig upp. Það er það sem hefur breyst mest í lífi mínu og ég held að það sé ekkert sem ég get gert í því,“ sagði Vozinha.

Hann var spurður að því hvernig hann frétti af fylgjenda fjöldanum fyrst.

„Ég var í viðtali og fjölmiðlamaður frá CazeTV spurði mig hvort ég vissi hvað var að gerast. Hann sýndi mér símann sinn og þá sá ég að ég var með yfir milljón fylgjendur," sagði Vozinha.

„Margir vilja vera frægir og vera í sviðsljósinu en þeir sjá bara jákvæðu hliðarnar. Ef ég fengi að velja lífið sem ég lifi í dag eða lífið sem ég átti áður myndi ég velja lífið gamla lífið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.