Fotbolti.net
28.09.26 - 16:30
Kári Snorrason

Fyrsta landsliðsmark fyrirliðans kom gegn Lúxemborg

Skoraði níu landsliðsmörk í 19 leikjum.

Skoraði níu landsliðsmörk í 19 leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Ísland mætir Lúxemborg annað kvöld í öðrum leik sínum af fjórum í yfirstandandi landsleikjaglugga í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Ísland gerði svekkjandi 1-1 jafntefli við Eistland á Laugardalsvelli síðastliðinn sunnudag en Eistar er lakasta lið riðilsins ef marka má heimslista FIFA.

Liðið flaug til Lúxemborgar í gær og er æfing ásamt fréttamannafundi á dagskrá síðdegis í dag.
Sjáðu fyrsta landsliðsmark Orra Steins
TENGT EFNI

Sjáðu fyrsta landsliðsmark Orra Steins

Ísland mætti Lúxemborg síðast árið 2023 í undankeppni fyrir EM 2024. Fyrri leikurinn fór fram í Lúxemborg þar sem heimamenn unnu 3-1 sigur, Hákon Arnar Haraldsson skoraði eina mark Íslands.

Í seinni leiknum, sem fram fór á Laugardalsvelli, enduðu leikar 1-1 þar sem Orri Steinn Óskarsson, núverandi landsliðsfyrirliði, braut ísinn og skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark. Gerson Rodriguez jafnaði metin fyrir gestina í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat.

Í sama leik sneri Gylfi Þór Sigurðsson sneri aftur inn á völlinn í treyju Íslands eftir þriggja ára fjarveru frá landsliðinu.
Uppskar mikinn fögnuð úr stúkunni þegar hann spilaði sinn fyrsta landsleik í þrjú ár.

Uppskar mikinn fögnuð úr stúkunni þegar hann spilaði sinn fyrsta landsleik í þrjú ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.