28.09.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir útskýrir af hverju Azaz spilaði ekki

Finn Azaz í leik með Írlandi.

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands.

Mynd: EPA

Finn Azaz í leik með Írlandi.

Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, hefur útskýrt af hverju Finn Azaz kom ekkert við sögu í 3-0 sigri Írlands á Ísrael í Þjóðadeildinni í gær.
Azaz var í leikmannahópnum og hitaði upp fyrir leikinn en sat allan tímann á varamannabekknum.

TENGT EFNI
Sagður íhuga að hætta að spila með Írlandi eftir síðustu daga
Mikil umræða hefur verið um Azaz fyrir leikinn þar sem móðir hans er frá Ísrael. Þá hefur komið fram að amma hans hafi áður starfað sem hershöfðingi í ísraelska hernum.
Heimir var spurður um fjarveru Azaz á blaðamannafundi eftir leikinn.
„Okkur fannst hann ekki tilbúinn til að spila. Hann vildi spila en það var mín ákvörðun,“ sagði Heimir.
„Hann er augljóslega í annarri stöðu en aðrir leikmenn í hópnum."
Heimir segir að ákvörðunin hafi einfaldlega snúist um að velja þá leikmenn sem hann taldi henta best í leikinn.
Landsleikir Írlands og Ísraels eru afar umdeildir í Írlandi og mótmæli hafa verið haldin vegna leikjanna. Írska landsliðið hélt meðal annars fund þar sem leikmenn ræddu hvort þeir ættu að taka þátt í leiknum. Eftir um fjögurra klukkustunda fundarhöld kaus meirihluti leikmanna að spila. Azaz var sagður hafa haldið ræðu á þeim fundi en í írskum fjölmiðlum hefur verið skrifað um það að hann muni mögulega hætta í írska landsliðinu eftir þetta verkefni þó hann sé bara 26 ára gamall.