Fotbolti.net
28.09.26 - 12:04
Elvar Geir Magnússon

Helgi Fróði og Freyr æfðu ekki daginn fyrir leik

Helgi Fróði Ingason.

Helgi Fróði Ingason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Á morgun klukkan 15 leika strákarnir í U21 landsliðinu við jafnaldra sína frá Sviss í undankeppni EM. Ísland þarf á sigri að halda í baráttunni um 2. sæti riðilsins.

Íslenska liðið átti flottan leik gegn Frakklandi á dögunum og gerði 1-1 jafntefli.
Liðið æfði á Þróttarvelli í dag en Helgi Fróði Ingason og Freyr Sigurðsson tóku ekki þátt í æfingunni vegna veikinda.

Helgi, sem spilar með Helmond Sport í Hollandi var í byrjunarliðinu gegn Frökkum en Freyr, sem spilar fyrir Fram, kom inn af bekknum.

Leikurinn fer fram á Þróttarvelli, Pepsi-vellinum.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland7+1717
2Sviss7+514
3Ísland8+512
4Færeyjar7-79
5Lúxemborg6-74
6Eistland7-132
Freyr Sigurðsson.

Freyr Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.