28.09.26 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað fór úrskeiðis hjá Aaron Ramsdale?

Ramsdale í leik með enska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ramsdale er á mála hjá Southampton en er ekki inn í myndinni þar.

Mynd: Southampton

Ramsdale fór á láni til Newcastle á síðasta tímabili en það gekk ekki upp.

Mynd: EPA

Ramsdale á að baki fimm landsleiki fyrir England.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Ramsdale í leik með enska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er ekki langt síðan Aaron Ramsdale var einn öflugasti markvörður Englands. Nú er staða hans allt önnur en BBC fjallar um stöðu hans.
Ramsdale er 28 ára gamall og hefur ekki spilað mínútu í deildarkeppni á þessu tímabili. Hann er fjórði markvörður í goggunarröðinni hjá Southampton í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands.

TENGT EFNI
Ramsdale orðinn fjórði markvörður Dýrlingana
Þetta er ansi mikil breyting fyrir leikmann sem var aðalmarkvörður Arsenal í titilbaráttu félagsins tímabilið 2022/23 og var þá valinn í lið ársins hjá leikmannasamtökunum.
Raya tók sætið
Ramsdale kom til Arsenal frá Sheffield United árið 2021 fyrir 24 milljónir punda og þurfti fljótlega að vinna hug stuðningsmanna félagsins. Það tókst. Hann átti frábært fyrsta tímabil og hjálpaði Arsenal að enda í fimmta sæti.
Tímabilið eftir var hann svo lykilmaður í liði Mikel Arteta sem barðist um enska meistaratitilinn. En í apríl 2023 gerði hann afdrifarík mistök gegn Southampton þegar liðin gerðu 3-3 jafntefli.
Fjórum mánuðum síðar kom David Raya frá Brentford. Raya tók fljótlega sætið af Ramsdale og Englendingurinn fékk lítið að spila eftir það. Hann var seldur til Southampton sumarið 2024 fyrir 25 milljónir punda.
Fjórða fallið á ferlinum
Ramsdale átti erfitt tímabil hjá Southampton þar sem liðið endaði neðst í úrvalsdeildinni með aðeins tólf stig.
Hann var þó ekki endilega vandamálið hjá Southampton og fékk oft hrós fyrir að halda liðinu inni í leikjum. Þetta var engu að síður fjórða fall Ramsdale úr efstu deild á ferlinum.
Í von um að endurvekja ferilinn fór hann svo á láni til Newcastle á síðasta tímabili. Það gekk heldur ekki upp.
Ramsdale lék aðeins tólf leiki í úrvalsdeildinni og tókst ekki að festa sig í sessi sem aðalmarkvörður liðsins. Hann fékk meðal annars á sig sjö mörk í 7-2 tapi gegn Barcelona í Meistaradeildinni.
Nú fjórði markvörður Southampton
Ramsdale sneri aftur til Southampton í sumar en hefur ekki fengið það hlutverk sem hann vonaðist eftir.
Daniel Peretz er nú fyrsti markvörður, George Long annar kostur og Jamie Jones er þriðji markvörður liðsins. Ramsdale er því kominn niður í fjórða sætið.
„Ég og félagið höfum tekið skýra ákvörðun um að Daniel verði okkar aðalmarkvörður og það stendur. Hann á það skilið eftir frábæra frammistöðu á síðasta tímabili," sagði Tonda Eckert, stjóri Southampton, áður en tímabilið byrjaði. „Skuldbinding mín við Longy sem annan markvörð stendur einnig. Þessi hópur hefur virkað mjög vel saman og Jamie hefur sömuleiðis sinnt sínu hlutverki sem æfingamarkvörður. Þannig ætlum við að halda áfram."
Ramsdale fékk tilboð um að fara á lán til félaga í Englandi, Spáni og Ítalíu í sumar en ákvað að vera áfram hjá Southampton. Markvörðurinn vill berjast fyrir sæti sínu og stefnir enn á að hjálpa félaginu aftur upp í úrvalsdeild. Hann er vel liðinn í búningsklefanum og er búinn að koma sér vel fyrir í borginni og ætlar að berjast fyrir sæti sínu, allavega þangað til í janúar.
Asmir Begovic, fyrrverandi liðsfélagi Ramsdale hjá Bournemouth, segir stöðuna eðlilega vera erfiða fyrir Englendinginn.
„Ég myndi elska að sjá Aaron spila aftur og vonandi gerist það í janúar,“ sagði Begovic.
Ramsdale er kominn í ansi óvænta stöðu miðað við hvar hann var fyrir aðeins þremur árum. Hann var þá aðalmarkvörður Arsenal, landsliðsmaður og einn af eftirsóttustu ungu markvörðum Englands. Nú bíður hann eftir tækifærinu upp í stúku hjá Southampton og verður fróðlegt að fylgjast með því hvað gerist næst hjá honum.