Fotbolti.net
28.09.26 - 17:35
Brynjar Ingi Erluson

Kane vill setja tvö ákvæði í samninginn

Harry Kane

Harry Kane

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane, leikmaður Bayern München og enska landsliðsins, hefur verið mjög skýr með að hafa tvö sérstök ákvæði í nýjum samningi sínum við þýska stórveldið.
Hinn 33 ára gamli Kane er í viðræðum við Bayern München um nýjan samning og er verið að ganga frá helstu atriðum hans, en Englendingurinn vill þó hafa tvö sérstök ákvæði inni í samningnum.

Samkvæmt Fabrizio Romano vill Kane að riftunarákvæði verði í samningnum og að hans gamla félag, Tottenham Hotspur, fái rétt til að jafna tilboð ef annað félag leggur fram boð í hann.

Kane kom til Bayern frá Tottenham árið 2023. Hann er markahæsti leikmaður í sögu enska félagsins og virðist enn vera opinn fyrir því að snúa aftur þangað síðar á ferlinum.

Hann hefur einnig talað um möguleikann á að spila í MLS-deildinni í Bandaríkjunum og á sér enn þann draum að verða sparkari í NFL-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.