Fotbolti.net
28.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp: Engin ástæða til að detta í þunglyndi

Klopp: Engin ástæða til að detta í þunglyndi
Canon

Mynd: EPA

Þýskaland tapaði óvænt gegn Grikklandi í Þjóðadeildinni í gær. Þetta var fyrsta tap Þýskalands gegn Grikklandi í sögunni.

Jurgen Klopp tók við af Julian Nagelsmann sem þjálfari þýska landsliðsins eftir HM. Hann hóf leik með jafntefli gegn Hollandi á dögunum og er því án sigurs eftir fyrstu tvo leikina.
„Það er engin ástæða fyrir mig að detta í þunglyndi og segja 'Við erum svo lélegir'. Við erum það ekki. Við erum ekkert það góðir heldur. Ef þið viljið gagnrýna einhvern, gagnrýnið mig," sagði Klopp.

„Leyfið nýju leikmönnunum að þróast. Þeir sem hafa fest sig í sessi eru topp leikmenn hjá sínum félagsliðum og ég styð þá. Þið getið gagnrýnt mig, ekki þá. Við þurfum ekki að rífa allt í sundur. Ég var hissa að einhverjir bauluðu. Framtíðin er björt. Við höldum áfram á þessari braut."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.