28.09.26 - 09:14
Elvar Geir Magnússon
Lúxemborg missti líka lykilmann í meiðsli

Danel Sinani í leiknum gegn Íslandi 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lúxemborg og Ísland mætast annað kvöld í C-deild Þjóðadeildarinnar í Lúxemborg. Lúxemborg er á toppi riðilsins eftir 2-1 útisigur gegn Búlgaríu á laugardaginn.
Ísland missti út Albert Guðmundsson í 1-1 jafnteflinu gegn Eistlandi og Lúxemborg missti einnig lykilmann hjá sér í meiðsli um helgina.

TENGT EFNI
Albert verður ekki meira með - Fór úr axlarlið
Sóknarmiðjumaðurinn Danel Sinani, leikmaður Sampdoria, fór meiddur af velli í leiknum gegn Búlgaríu og ljóst er að hann spilar ekki meira. Þessi 29 ára leikmaður var meðal markaskorara þegar Lúxemborg vann 3-1 sigur gegn Íslandi 2023.
Miðvörðurinn Seid Korac er einnig á meiðslalistanum og helsti markaskorari liðsins Gerson Rodrigues hefur ekki spilað síðan á síðasta ári en hann fékk dóm fyrir líkamsárás og heimilisofbeldi.
„Þótt frammistaðan gegn Búlgaríu hafi verið sú langbesta og stöðugasta undir stjórn Jeff Strasser, vekur sívaxandi meiðslalisti upp þá spurningu: Hversu langt getur þetta lið náð án stærstu stjarnanna?" segir í grein RTL í Lúxemborg.