28.09.26 - 20:10
Brynjar Ingi Erluson
Meiðsli í enska landsliðshópnum - „Ég er ekki enn viss með það“

Tveir voru ekki með á æfingu enska liðsins

Mynd: EPA

Konsa var ekki með á æfingu í dag

Óvíst er með þátttöku tveggja leikmanna enska landsliðsins í leiknum gegn Tékkum á morgun, en Thomas Tuchel, þjálfari Englendinga, staðfesti það á fréttamannafundi í dag.

TENGT EFNI
Konsa og Nico O'Reilly æfðu ekki með Englandi
Varnarmennirnir Ezri Konsa og Nico O'Reilly voru ekki með á æfingu enska landsliðsins á Tottenham-svæðinu í dag og ýtir það undir þær fregnir að þeir verði ekki með á morgun.
Tuchel var spurður út í stöðuna og meiðslin, en heldur enn í vonina um að þeir verði klárir í tæka tíð.
„Ég er ekki enn viss með það. Eins og þið sáuð þá voru þeir ekki með á æfingu í dag vegna smávægilegra meiðsla. Það eru engu að síður vandamál,“ sagði Tuchel.
Margir þeirra leikmanna sem byrjuðu síðasta leik gegn Spánverjum tóku aðeins létta æfingu í dag.
Spurður út í leikinn gegn Tékkum sagði Tuchel að það væri of snemmt að tala um skyldusigur.
„Það er svolítið snemmt að segja að þetta sé skyldusigur. Við berum virðingu fyrir gæðum andstæðingsins, en ég er einfaldlega þannig að ég vil alltaf ná í úrslit, sama hvar við spilum. Það á sérstaklega við eftir tap, hvort sem þetta er eina leiðin til að komast áfram eða einfaldlega vegna þess að þú þarft að bregðast strax við. Leikurinn á morgun er í algjörum forgangi,“ sagði Tuchel.