Fotbolti.net
28.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Messi skoraði glæsilegt mark - Nálgast met

Messi skoraði glæsilegt mark - Nálgast met
Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi skoraði glæsilegt mark í 2-1 tapi gegn Columbus Crew í MLS deildinni í nótt. Columbus komst yfir en Messi jafnaði metin með marki beint úr aukaspyrnu.
Hann tók skotið frá kantinum og yfir markvörðinn og boltinn endaði í fjærhorninu. Þetta var 76. mark hans á ferlinum beint úr aukaspyrnu. Hann er aðeins tveimur mörkum frá því að jafna met Brasilíumannsins Marcelinho Carioca sem skoraði 78 mörk frá 1988-2009.

Santiago Morales, leikmaður Inter Miami, fékk rautt spjald í uppbótatíma og Jamal Thiare skoraði sigurmark Columbus þegar átta mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Inter Miami er í 3. sæti Austurdeildar með 46 stig eftir 27 umferðir. Columbus er í 12. sæti með 29 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.