28.09.26 - 19:23
Brynjar Ingi Erluson
Nýr kafli að hefjast hjá Roma

Mynd: Roma

Mynd: Roma
Ítalska félagið Roma hefur fengið endanlegt leyfi til að byggja nýjan leikvang, en félagið greindi frá tíðindunum í dag.
Félagið hefur reynt að fá nýjan leikvang í gegn í áratugi, löngu áður en Friedkin-hópurinn eignaðist það fyrir sex árum.
Eigendurnir hafa unnið hörðum höndum að því að fá nauðsynleg leyfi og nú hefur félagið loks fengið grænt ljós á að hefja framkvæmdir. Stefnt er að því að þær hefjist í mars á næsta ári og að leikvangurinn verði tilbúinn árið 2029.
Vonir standa einnig til þess að völlurinn verði einn þeirra sem notaðir verða á Evrópumótinu árið 2032, en Ítalía og Tyrkland eru gestgjafar mótsins.
Tíðindin eru mikil fyrir bæði félagið og borgina, enda verður hægt að nýta Stadio Pietralata undir ýmiss konar viðburði auk fótboltaleikja.
Leikvangurinn mun rúma rúmlega 60 þúsund áhorfendur og er áætlað að framkvæmdirnar kosti um einn milljarð evra.
Roma hefur leikið heimaleiki sína á Ólympíuleikvanginum í Róm í rúm 70 ár og deilt vellinum með nágrönnum sínum í Lazio.

????? Il comunicato del Club sullo Stadio di Pietralata
— AS Roma (@OfficialASRoma) September 28, 2026
???? https://t.co/qRnPAbJVrm #ASRoma pic.twitter.com/6pelnv4xFP