Fotbolti.net
28.09.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ödegaard: Á ekki heima á fótboltavellinum

Martin Ödegaard liggur eftir.

Martin Ödegaard liggur eftir.

Canon

Mynd: EPA

Martin Ödegaard, fyrirliði norska landsliðsins og Arsenal, var allt annað en sáttur við Bernardo Silva eftir leik Noregs og Portúgals í Þjóðadeildinni í gær.

Ödegaard varð fyrir tæklingu frá Silva undir lok leiksins og virtist fara illa út úr henni. Hann sást haltra eftir leik.
„Þetta á ekki heima á fótboltavelli. Það er synd að fólk hegði sér svona. Hann sparkar mig niður löngu eftir að ég er búinn að spila boltanum. Ég skil ekki hvað hann er að gera,“ sagði Ödegaard við TV2 eftir leikinn.

Ödegaard sagði jafnframt að Silva hefði ekki beðist afsökunar eftir atvikið.

Silva virtist hins vegar lítið sjá eftir tæklingunni þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leikinn.

„Hvaða tækling? Þetta er fótbolti, vinur,“ sagði Silva við Nettavisen.

Noregur tapaði leiknum naumlega en Erling Haaland skoraði mark heimamanna. Óvíst er enn hversu alvarleg meiðsli Ödegaard eru.

Bernardo Silva.

Bernardo Silva.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.