28.09.26 - 18:14
Brynjar Ingi Erluson
Þjóðadeildin: Dramatík í Armeníu

Trubin var frábær gegn Georgíu

Mynd: EPA

Svartfellingar unnu dramatískan sigur í Armeníu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Trubin var frábær gegn Georgíu

Mynd: EPA
Þrír leikir voru að klárast í Þjóðadeild karla. Georgía og Úkraína gerðu markalaust jafntefli í B-deildinni á meðan Svartfjallaland vann dramatískan 3-2 sigur á Armeníu í Yerevan.
Georgíumenn voru sterkari aðilinn gegn Úkraínu í fyrri hálfleik, þó gestirnir fengju sín færi. Báðir markverðir áttu góðan leik en Giorgi Mamardashvili, markvörður Liverpool, stóð á milli stanganna hjá Georgíu á meðan Anatoliy Trubin gerði vel hinum megin og var valinn maður leiksins.
Þetta var annar leikurinn í röð þar sem Georgíu mistókst að skora, en liðið náði þó í sitt fyrsta stig. Úkraína er hins vegar á toppi B-riðils með fjögur stig.
Í C-deildinni unnu Svartfellingar dramatískan 3-2 sigur á Armeníu í Yerevan.
Svartfellingar komust tvisvar yfir í fyrri hálfleiknum en Armenar jöfnuðu í bæði skiptin.
Þegar lítið var eftir skoraði Aleksa Latkovic sigurmark Svartfellinga, sem eru með fullt hús stiga í B-riðli eftir tvo leiki. Armenía er í öðru sæti með þrjú stig.
Í sama riðli gerðu Lettland og Kýpur markalaust jafntefli og náðu þar með bæði í sín fyrstu stig.
Georgía 0 - 0 Úkraína
Armenía 2 - 3 Svartfjallaland
0-1 Erik Piloyan ('20 , sjálfsmark)
1-1 Artur Serobyan ('34 )
1-2 Nikola Krstovic ('38 )
2-2 Eduard Spertsyan ('65 )
2-3 Aleksa Latkovic ('89 )
Lettland 0 - 0 Kýpur