28.09.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tonali: Erum ekki með stjörnuleikmann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalir byrjuðu Þjóðadeildina illa undir stjórn Roberto Mancini með 2-0 tapi gegn Belgíu á dögunum. Ítölsku stuðningsmennirnir voru ekki sáttir og bauluðu á leikmennina í leikslok.
Miðjumaðurinn Sandro Tonali er bjartsýnn á að liðið muni smella saman.
„Það er mikilvægt að svara og við getum gert það eftir nokkra daga. Hópurinn er heilbrigður með marga unga leikmenn. Það er erfitt að vera með allt strax, við erum ekki með stjörnuleikmann," sagði Tonali.
„Við verðum að verja tíma saman, leggja hart að okkur og njóta saman. Við erum heilbrigðir og sterkir menn. Með tíma munu gæðin brjótast út."
Ítalía mætir mætir Tyrklandi í kvöld. Belgía fær Frakkland í heimsókn á sama tíma. Belgía og Frakkland eru með þrjú stig og Tyrkland og Ítalía án stiga.