Fotbolti.net
28.09.26 - 20:20
Brynjar Ingi Erluson

Tvö félög höfnuðu því að fá Sterling

Það er lítill áhugi á Sterling

Það er lítill áhugi á Sterling

Canon

Mynd: EPA

Franski miðillinn Foot Mercato greinir frá því að tvö félög í frönsku úrvalsdeildinni hafi hafnað möguleikanum á að fá enska vængmanninn Raheem Sterling.
Sterling er án félags eftir að hafa yfirgefið Feyenoord í sumar eftir afar dapurt tímabil í Hollandi.

Hann var á sínum tíma einn besti vængmaður heims hjá Manchester City, en ferill hans hefur tekið mikla dýfu á síðustu árum og hann langt frá sínu besta.

Foot Mercato hefur heimildir fyrir því að Le Havre og eitt annað ónefnt félag í frönsku úrvalsdeildinni hafi fengið Sterling boðinn á dögunum, en bæði félög höfnuðu því strax.

Hinn 31 árs gamli Englendingur lenti þá í frekari vandræðum á dögunum þegar hann var gripinn fyrir glæfraakstur og vörslu hlátursgass. Sterling játaði sök og gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi.

Ekki er ljóst hvenær dómur verður kveðinn upp í því máli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.