Fotbolti.net
28.09.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Van Dijk ósáttur eftir sigur - „Lélegur leikur"

Van Dijk ósáttur eftir sigur - „Lélegur leikur"
Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Hollands, var ósáttur þrátt fyrir 2-1 sigur á Serbíu í Þjóðadeildinni í gær. Mexx Meerdink skoraði bæði mörk Hollands en Luka Jovic jafnaði metin í 1-1 strax í upphafi seinni hálfleiks.

Holland gerði jafntefli gegn Þýskalandi í fyrsta leiknum þar sem Cody Gakpo jafnaði metin í lok leiksins.
„Ég hef verri tilfinning núna en eftir síðasta leik. Þetta var lélegur leikur hjá okkur," sagði Van Dijk.

„Við hefðum getað gert okkur auðveldara fyrir ef við hefðum klárað færin. Við erum ekki að gera það og það er hættulegt. Við megum gagnrýna hvern annan, við höfum klárlega verk að vinna."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.