28.09.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verkefnin sem bíða nýs yfirmanns fótboltamála Liverpool

Julian Ward, nýr yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool.

Mynd: Liverpool

Samningur Van Dijk rennur út eftir tímabilið.

Mynd: EPA

Fær Mac Allister nýjan samning?

Mynd: EPA

Ward fékk Gakpo til félagsins.

Mynd: EPA

Liverpool fagnar marki.

Julian Ward var á dögunum ráðinn yfirmaður íþróttamála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool í annað sinn.
Ward tók við af Richard Hughes, sem hélt til Sádi-Arabíu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ward gegnir starfinu en hann var í sömu stöðu tímabilið 2022/23 áður en hann ákvað að taka sér hlé.

Nú er hann mættur aftur og verkefnalistinn er ansi langur. The Athletic tók saman helstu verkefni Ward við endurkomuna.
Eitt af fyrstu verkefnum Ward verður að taka ákvörðun um framtíð nokkurra leikmanna. Virgil van Dijk, Alisson, Joe Gomez, Kostas Tsimikas og Wataru Endo eru á samningnum sem renna út næsta sumar.
Van Dijk og Alisson eru orðnir 35 og 33 ára og því þarf Liverpool að meta vandlega hvort félagið vilji halda þeim, og þá hversu lengi.
Á sama tíma þarf Ward að fylgjast með framtíð Alexis Mac Allister. Argentínumaðurinn á tvö ár eftir af samningi sínum en Liverpool var ekki tilbúið að bjóða honum nýjan samning í sumar. Frammistaða hans í upphafi tímabils gæti þó breytt þeirri stöðu.
Þá þarf Ward einnig að huga að framtíð hins unga Rio Ngumoha. Hann verður 18 ára á næsta ári og Liverpool vill tryggja honum langtímasamning. Viðræður um nýjan samning eru þegar hafnar.
Jafnvægið í hópinn
Ward tekur við leikmannahóp sem búið er að eyða gríðarlegum fjárhæðum í síðastliðin ár. Alexander Isak, Florian Wirtz og Bradley Barcola kostuðu Liverpool samtals allt að 364 milljónir punda.
Isak hefur loksins byrjað að sýna sitt rétta andlit eftir erfiða fyrstu leiktíð, en Wirtz hefur átt erfitt uppdráttar í byrjun. Barcola er enn að koma sér í leikform eftir að hafa komið seint til félagsins.
Það verður því eitt af stóru verkefnum Ward að tryggja að þessar fjárfestingar skili Liverpool því sem félagið vonaðist eftir og byggja hóp í kringum þá með jafnvægi. Það eru nefnilega ákveðin göt í leikmannahópnum sem þarf að fylla.
Eftir brotthvarf Mohamed Salah vantar til að mynda náttúrulegan hægri kantmann í hópinn. Varnarlínan vekur einnig spurningar og þarf að koma í ljós hvort Milos Kerkez nái að festa sig í sessi vinstra megin og hvort Conor Bradley geti snúið aftur eftir meiðlsi og tekið við hægri bakverðinum.
Miðjan er þó líklega stærsta spurningamerkið. Liverpool hefur áfram mikinn áhuga á Lamine Camara hjá Mónakó og Ward gæti þurft að ákveða hvort rétti tíminn sé kominn til að fjárfesta í nýjum miðjumanni.
Þekkir félagið inn og út
Stór kostur fyrir Liverpool er að Ward þekkir félagið mjög vel. Hann kom fyrst til Liverpool árið 2012 eftir að hafa starfað við greiningu og njósnir fyrir portúgalska landsliðið og Manchester City. Hann vann sig upp innan Liverpool og varð aðstoðarmaður yfirmanns fótboltamála árið 2020.
Ward tók þátt í nokkrum stórum félagaskiptum hjá Liverpool, meðal annars kaupum á Darwin Núnez, Luis Diaz, Cody Gakpo og Alexis Mac Allister. Hann kom einnig að því að félagið ákvað að hætta við að eltast við Jude Bellingham.
Nú fær hann annað tækifæri og verkefnin eru mörg; samningar sem þarf að klára, leikmenn sem þurfa að sanna sig, eyður sem þarf að fylla og nýr stjóri sem þarf að styðja.