28.09.26 - 12:00
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Guðjohnsenar spila og skora í hálfa öld

Arnór Guðjohnsen skoraði fjögur mörk í leik gegn Tyrklandi á Laugardalsvellinum árið 1991.

Mynd: Íslensk knattspyrna 1991

Þegar rétt tæplega fimmtán ára gamall strákur úr Víkingi, tiltölulega nýfluttur til Reykjavíkur frá Húsavík, spilaði vináttuleik með drengjalandsliði Íslands gegn Færeyjum á malarvelli í Þórshöfn 17. júlí 1976 sá enginn fyrir hvert framlag hans og afkomenda hans til íslenskrar knattspyrnu væri orðið hálfri öld síðar.
Á mölinni í Færeyjum hófst langur og farsæll landsliðsferill Arnórs Guðjohnsens, sem síðan hefur endurnýjast reglulega í tveimur sonum hans og þremur sonarsonum.
Sex Guðjohnsen-feðgar sem tilheyra þremur kynslóðum eiga nú að baki samtals 387 landsleiki fyrir Íslands hönd, á þessum rétt ríflega fimmtíu árum sem liðin eru frá því Arnór spilaði þennan umrædda leik í Færeyjum.
Tveimur vikum síðar, í ágústbyrjun 1976, skoraði Arnór sitt fyrsta mark í landsliðsbúningi Íslands, gegn Vestur-Þýskalandi á Norðurlandamóti drengjalandsliða í Kaplakrika í Hafnarfirði.
Þetta var fyrsta markið af 109 mörkum Guðjohnsena fyrir íslensk landslið en tvö bættust við um liðna helgi. Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu þegar íslenska 21-árs landsliðið gerði jafntefli við Frakka, 1-1, á Þróttarvellinum föstudaginn, mark númer 108, og á laugardag skoraði bróðir hans Andri Lucas Guðjohnsen fallegt skallamark í jafnteflisleik A-landsliðsins gegn Eistlandi á Laugardalsvellinum. Mark númer 109.
En hver þeirra skoraði þá hundraðasta markið?