Fotbolti.net
28.09.26 - 13:18
Elvar Geir Magnússon

Vináttulandsleikir: Nunez og Ueda með tvennur

Darwin Nunez skoraði tvennu.

Darwin Nunez skoraði tvennu.

Canon

Mynd: EPA

Suður-Kórea, undir stjórn bráðabirgðaþjálfarans Robert Moreno, fékk 1-4 skell gegn Úrúgvæ í vináttulandsleik í morgun. Diego Forlan fagnaði því sínum fyrsta sigri sem landsliðsþjálfari Úrúgvæ en hann stýrir liðinu til áramóta að minnsta kosti.

Darwin Nunez, fyrrum sóknarmaður Liverpool sem nú spilar með Al-Diriyah í Sádi-Arabíu, skoraði tvennu í leiknum. Úrúgvæ var mun sterkara liðið og var komið í 3-0 í fyrri hálfleik.

Ayase Ueda, liðsfélagi Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille, skoraði tvennu í 2-1 sigri Japans gegn Venesúela. Sigurmarkið kom úr vítaspyrnu á sjöttu mínútu uppbótartímans.
Suður-Kórea 1 - 4 Úrúgvæ
0-1 Darwin Nunez ('13 )
0-2 Giorgian De Arrascaeta ('27 )
0-3 Guillermo Varela ('43 )
0-4 Darwin Nunez ('62 )
1-4 Lee Kang-in ('80 )

Japan 2 - 1 Venesúela
0-1 Kevin Kelsy ('46 )
1-1 Ayase Ueda ('49 )
2-1 Ayase Ueda ('90 , víti)
Japanir fagna.

Japanir fagna.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.