28.09.26 - 18:10
Brynjar Ingi Erluson
Yngsti markaskorari í sögu Tindastóls

Guðni þykir gríðarlegt efni

Mynd: Tindastóll

Guðni þykir gríðarlegt efni

Mynd: Tindastóll
Guðni Bent Helgason, leikmaður Tindastóls, skrifaði sig í sögubækur félagsins í lokaumferð 3. deildar karla á dögunum.
Guðni, sem er aðeins 14 ára gamall, kom inn af bekknum í hálfleik og skoraði tvennu á sjö mínútum í ótrúlegu 4-4 jafntefli gegn toppliði Víðis.
Þar með varð hann yngsti markaskorari í sögu Tindastóls, 14 ára og 218 daga gamall svo tölfræðin sé nákvæm.
Þetta var fimmti leikur hans með Stólunum í sumar, en liðið hafnaði í 4. sæti deildarinnar með 42 stig og var grátlega nálægt því að komast upp um deild.