Fotbolti.net
28.10.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Telur Olise betri en Yamal: Karl er engin ofurstjarna

Telur Olise betri en Yamal: Karl er engin ofurstjarna
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Uli Hoeness, heiðursforseti og stjórnarmeðlimur hjá þýska stórveldinu FC Bayern, svaraði spurningum frá Welt am Sonntag og ræddi meðal annars Michael Olise og Lennart Karl.
Segir Wirtz hafa gert mistök með því að fara til Liverpool
TENGT EFNI

Segir Wirtz hafa gert mistök með því að fara til Liverpool

Hoeness hefur miklar mætur á Olise, sem er franskur landsliðsmaður og endaði í níunda sæti í kosningu Ballon d'Or á besta leikmanni síðustu leiktíðar.

„Michael Olise er á góðri leið með að verða besti fótboltamaður í heimi. Að mínu viti er hann betri leikmaður heldur en Lamine Yamal," sagði Hoeness. „Hann skorar, leggur upp og er mjög snöggur. Hann er nánast fullkominn leikmaður."

24 ára Olise er ennþá með rúmlega tvö og hálft ár eftir af samningi sínum hjá Bayern og hefur meðal annars verið orðaður við félagaskipti til Real Madrid.

„Það er bara bull, Michael er samningsbundinn okkur til 2029 og okkur dettur ekki í hug að selja hann. Við munum ræða við hann um að framlengja samninginn þegar líður á tímabilið og ef hann vill það ekki þá er það ekki vandamál. Við getum beðið og séð hvernig staðan verður 2029, ég hef alls engar áhyggjur."

Hoeness ræddi einnig ungstirnið Lennart Karl sem braust fram í sviðsljósið í fyrra og sýndi frábæra takta en hefur ekki verið jafn góður í ár. Karl er 18 ára gamall og hefur þegar spilað fjóra A-landsleiki fyrir Þýskaland.

Hann hefur ekki verið í stóru hlutverki innan vallar á tímabilinu en er rosalega virkur á samfélagsmiðlum utan vallar. Kærastan hans er áhrifavaldur og tekur Karl virkan þátt í efninu sem hún lætur frá sér. Hoeness er einn þeirra sem hefur áhyggjur af því að Karl sé ekki að einbeita sér nógu mikið af fótboltanum út af samfélagsmiðlum.

„Ég mun setjast niður með honum (Lennart Karl) og eiga alvarlegar samræður, hann þarf að átta sig á því að hann er langt frá því að vera ofurstjarna. Ungir leikmenn verða að sýna hógværð og samanburðir við Michael Olise hjálpa ekki. Lennart á mjög langt í land til að komast á svipaðan stað og Olise getulega séð, það er heill heimur á milli þeirra akkúrat núna."
Telur Olise betri en Yamal: Karl er engin ofurstjarna
Canon

Mynd: EPA

Telur Olise betri en Yamal: Karl er engin ofurstjarna
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG3+99
2Aston Villa3+99
3Liverpool3+59
4Real Madrid3+59
5Betis3+39
6Stuttgart3+57
7Arsenal3+47
8Barcelona3+56
9Como3+56
10Man City3+46
11Club Brugge3+36
12Sporting3+36
13Dortmund3+16
14Bayern3+55
15Roma3+34
16Atletico Madrid3+14
17Shakhtar D3+14
18PSV304
19Villarreal303
20Man Utd3-13
21Inter3-13
22Napoli3-23
23Galatasaray3-33
24LASK Linz3-33
25Sabah FK3-33
26Feyenoord3-43
27Lens3-43
28Bodö/Glimt3-53
29AEK3-53
30RB Leipzig3-53
31Fenerbahce3-62
32Slavia Prag3-31
33Viking FK3-41
34Porto3-40
35Lille3-60
36Slovan3-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.