28.10.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Jacquet komst á radar Liverpool þegar félagið eltist við Yoro

Jeremy Jacquet.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Jeremy Jacquet.

Mynd: EPA
Varnarmaðurinn ungi Jeremy Jacquet hefur aðlagast því gríðarlega vel að spila fyrir Liverpool, það hefur jafnvel gengið framar björtustu vonum hjá forráðamönnum félagsins.
Frá því að hann kom á Anfield í sumar hefur Jacquet verið í byrjunarliðinu í öllum leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. Hann hefur spilað fleiri mínútur (956) en nokkur annar útileikmaður Liverpool á tímabilinu.
„Þessi aðlögun er enn merkilegri í ljósi þess að hann varði stórum hluta ársins í endurhæfingu eftir meiðsli; hann braut öxl í febrúar og glímdi síðan við hnémeiðsli í sumar," segir í umfjöllun Aadam Patel hjá BBC um þennan 21 árs varnarmann.

TENGT EFNI
Fimm bestu og verstu kaupin í enska
Í greininni kemur fram að Jacquet hafi upphaflega komist á radarinn hjá Liverpool þegar félagið var að eltast við Leny Yoro árið 2024 en Jacquet lék þá með Rennes.
Yoro ákvað að fara frá Lille til Manchester United og síðasta sunnudag var erfitt að horfa framhjá muninum á þessum tveimur leikmönnum.
Hinn tvítugi Yoro gerði afdrifarík mistök í tapi United gegn Bournemouth, á meðan Jacquet sýndi aftur öruggan leik gegn Brighton.

Heimild: BBC

Mynd: EPA