28.10.26 - 11:35
Elvar Geir Magnússon
Aron Þórður hættur í boltanum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Þórður Albertsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og var heiðraður á síðasta leik tímabilsins hjá KR.
Aron Þórður, sem er 30 ára, kom til KR frá Fram árið 2022 og spilaði 122 leiki fyrir félagið.
Hann lék einnig með HK og Þrótti Reykjavík á ferli sínum.
Í sumar kom Aron Þórður aðeins við sögu í fimm leikjum með KR í Bestu deildinni en í fyrra var hann í stóru hlutverki og spilaði 22 leiki á Íslandsmótinu fyrir félagið.