Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 28. nóvember 2021 17:00
Aksentije Milisic
Arsenal og Tottenham berjast um Kulusevski
Á góðri stundu í treyju Juve.
Á góðri stundu í treyju Juve.
Mynd: EPA
Lundúnarliðin Arsenal og Tottenham hafa mikinn áhuga á Dejan Kulusevski, leikmann Juventus.

Hinn sænski Kulusevski kom til Juventus frá Parma fyrir einu og hálfu ári síðan og fékk hann töluvert mikið að spila undir stjórn Andrea Pirlo á síðustu leiktíð.

Það sama hefur hins vegar ekki verið upp á teningnum á þessu tímabili undir stjórn Max Allegri. Svíinn hefur fengið fá tækifæri og ofan á það hefur gengi Juventus í deildinni verði afleitt.

Tottenham og Arsenal hafa bæði mikinn áhuga á að fá þennan 21 árs gamla leikmann en talið er að Juventus vilji fá allt að 30 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Kulusevski kom inn á sem varamaður í gær þegar Juventus tapaði mikilvægum leik gegn Atalanta í Serie A deildinni.
Athugasemdir
banner
banner