Það eru tveir leikir í B-deild Kjarnafæðismótsins á Akureyri í kvöld.
Klukkan 20:30 verður flautað til leiks í leik Samherja og Kormáki/Hvöt. Hann fer fram á KA-vellinum. Fyrir leikinn eru bæði þessi lið stigalaus, Kormákur/Hvöt eftir tvo leiki og Samherjar eftir þrjá leiki.
Bæði Samherjar og Kormákur/Hvöt leika í 4. deild karla.
Í hinum leiknum, sem hefst klukkan 20:45, mætast Þór 2 og KA 3. Erkifjendur að eigast við. Þór 2 er með fjögur stig eftir tvo leiki og KA 3 með þrjú stig, einnig eftir tvo leiki.
Leikir dagsins:
20:30 Samherjar - Kormákur/Hvöt (KA-völlur)
20:45 Þór 2 - KA 3 (Boginn)
Athugasemdir