29.01.25 - 10:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Salan á Mikael ein sú stærsta í sögu Venezia

Mikael Egill Ellertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Egill Ellertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og sagt var frá í gærkvöldi, þá er Mikael Egill Ellertsson á leið frá Venezia til Genoa. Bæði þessi félög leika í ítölsku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
Mikael Egill á leið til Genoa - Verður lánaður aftur til Venezia
Genoa mun borga um 3,5 milljónir evra fyrir Mikael sem gerir þetta að einni dýrustu sölu í sögu Venezia.
Dýrasta sala í sögu Venezia í dag er salan á Bandaríkjamanninum Tanner Tessmann til Lyon fyrir 6 milljónir evra. Salan á MIkael verður sú sjöunda dýrasta í sögu Venezia.
Mikael gekk til liðs við Venezia frá Spezia í janúar árið 2023. Hann hefur leikið 70 leiki og skorað sex mörk fyrir félagið. Liðið er í 19. sæti Serie A með 16 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Genoa er í 12. sæti deildarinnar en liðið hefur verið á uppleið síðan Arsenal goðsögnin Patrick Vieira tók við liðinu í nóvember en þá var liðið í 17. sæti.