Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. febrúar 2020 19:57
Ívan Guðjón Baldursson
Ben Foster: Þetta virkaði frekar auðvelt
Mynd: Getty Images
Ben Foster, markvörður Watford, var kátur eftir óvæntan 3-0 sigur gegn toppliði Liverpool.

Foster sló á létta strengi að leikslokum en sigurinn kom Watford úr fallsæti.

„Við þurfum bara að gera þetta í hverri viku! Þetta virkaði frekar auðvelt. Við vorum með leikplan og héldum okkur við það. Sóknarmennirnir þeirra þurftu að koma langt niður á völlinn til að fá boltann í lappir - það var það sem við lögðum upp með," sagði Foster.

„Fótbolti er ekkert svo erfiður, er það? Við héldum bara skipulagi og nýttum færin. Ég man þegar við spiluðum á Anfield þá áttum við góðan leik og mér fannst við verðskulda sigur.

„Liverpool er eitt af bestu liðum sem þú munt sjá en þetta snerist um okkur í dag, við þurftum þrjú stig. Það eru sex eða sjö lið þarna í baráttu og núna verðum við að vinna nokkra leiki til að koma okkur úr hættunni. Leiðin er enn löng."


Ismaila Sarr var besti maður vallarins. Hann skoraði tvö og lagði eitt upp og hrósaði Foster honum.

„Ismaila Sarr býr yfir brjáluðum hæfileikum. Hann býr yfir ótrúlegum hraða og er svellkaldur fyrir framan markið."
Athugasemdir
banner
banner